fimmtudagur, 11. september 2008

Úpps...

Ég hafði réttilega áhyggjur af hvítu flísunum mínum sem þekja jú stóran hluta nýja heimilisins. Áhyggjur mínar fólust samt fyrst og fremst í því að þurfa að þrífa þær en það er ekki svo mikið mál. Óhreinindin renna af þeim og árangurinn er svo greinilegur að það er nú bara hreint ágætt að þrífa þær :) Aftur á móti eiga ýmsir hlutir á heimilinu eftir að enda ævi sína á flísunum þar sem þær hlífa fáu.

Okkur líður annars ótrúlega vel í nýju íbúðinni þó við eigum nú enn töluvert langt í land með að koma okkur fyrir. Góðir hlutir gerast hægt og þar sem við ætlum nú að vera hérna í nokkur ár hið minnsta þá er nú betra að taka því bara rólega og framkvæma hlutina að vel hugsuðu máli.

Ég er á fullu þessa dagana enda nóg að gera við að flytja, vinna tæplega sjö tíma vinnudag og vera í skóla auk þess að sinna stelpunum eins vel og ég get. Þær hafa því miður orðið svolítið útundan undanfarnar vikur og þær láta klárlega finna fyrir því. Núna er lífið að færast í réttar skorður aftur og öllum farið að líða betur með þessar breytingar.


Viljiði pæla !!! Litla skessan mín er að verða 18 mánaða og sú stóra sem fæddist bara í fyrradag verður 4ra ára eftir rúman mánuð!! Fáránlegt hvað tíminn flýgur og undarlegt hvernig þessar stelpur verða bara skemmtilegri og fallegri með hverjum mánuðinum sem líður. Það er ekkert smá skref að þurfa að ræða um dauðann við tæplega 4ra ára stelpuskott sem er dauðskelfd við að þurfa að fara ofan í holu þegar hún deyr. Er nokkur leið að ímynda sér hvaðan hún hefur þessar ótímabæru áhyggjur? Er nokkur í hennar nánasta hring sem er sérfræðingur í að hafa áhyggjur af ótrúlegustu hlutum? Nei það held ég bara ekki ;)