Jæja, loksins hafðist það og ritgerðin kláraðist! 10 dögum á eftir áætlun og í staðinn fyrir að eiga 11 daga í fríi á ég einn. Eftir tvo daga fer ég í vettvangsnám og geri fastlega ráð fyrir að þá slakni á naflastrengnum á milli okkar Arneyjar Vöku. Hún ætlar samt að gera þetta pínu dramatískt og vera sárlasin en skinnið er núna lasnara en nokkru sinni fyrr.
Vá hvað þetta var leiðinleg ritgerð. Stundum er actually gaman að skrifa ritgerð og þetta var svo sannarlega ekki ein af þeim. Ég vona að verkefnavinnan sem fer í hönd samfara vettvangsnáminu verði skemmtilegri og ánægjulegri en þarf ég svo sannarlega á því að halda ef ég ætla að meika þetta.
Nú er ég svo ánægð með mig að ég neita að fara að sofa, búin að að eyða of miklum tíma með lasarusinn litla í fanginu eða upp í rúmi í dag til að vera tilbúin í draumalandið. Langar bara til að slaka pínu á og eyði þar með frekar tímanum í að gera ekki neitt heldur en að fara að sofa.
Ungfrú 1 árs er á öðru máli og vill fá mig upp í rúm núna strax og helst áður en hún vaknaði!
Svo þetta er nóg í bili....
þriðjudagur, 25. mars 2008
laugardagur, 22. mars 2008
Stór dagur í dag ...

Þessi fallega mús er 1 árs í dag. Mamman á bænum er svolítið hissa á því hvert tíminn hefur farið en það er sem þeir segja time flies when you are having fun!! Og það er svo sannarlega ótrúlega skemmtilegt að eiga hana. Hún er bara bestust og flottust!
Til stóð að fara í Húsdýragarðinn í tilefni dagsins en það viðrar víst ekki til þess í dag. Hvað annað 1 árs stelpu finnst skemmtilegt að gera (já eða öðrum fjölskyldumeðlimum til að brjóta upp daginn því Arney Vaka vill klárlega helst vera bara heima að leika).
sunnudagur, 2. mars 2008
Ójá
Helginni er að ljúka og ég er bara búin að gera ótrúlega margt og vera ótrúlega mikið en með sjálfri mér sem er gott.
Á föstudagskvöldið fóru allir snemma í rúmið (fyrir 20 takk fyrir) nema ég sem var dugleg að lesa í gullbókinni minni sem ég pantaði með hraðsendingu frá Amazon til að geta skilað verkefni eftir þrjár vikur. Sem betur fer er gullbókin ekki jafnleiðinleg og ég óttaðist og ég kemst bara nokkuð ljúflega í gegnum hana. Viti menn, ég verð orðin sérfræðingur í gerð einstaklingsáætlana innan skamms. Þegar ég var búin að lesa í gullbókinni poppaði ég (sem btw er nýlærður hæfileiki og ég er betri poppari en Óli takk fyrir) og horfði á Ugly Betty á meðan aðrir fjölskyldumeðlimir hrutu í kór. Þögnin var dásamleg og ég elska þessa þætti.
Svo gerðust undur og stórmerki og ég fór í bíó í gær. Erla bauð okkur í bíó og ég verð nú samt að viðurkenna að mér fannst myndin ekki sérlega skemmtileg. Hún fór þó betur en á horfðist og var ekki svo slæm eftir hlé. Saga hlakkaði mikið til að fá ömmu sína að passa sig en Arney hagaði sér ekki sérlega vel og fékk alla athyglina enda óvön svona útstáelsi á foreldrunum.
Í dag var ég svo aftur ein heima og nú í alvöru! Óli og stelpurnar fóru í Húsdýragarðinn og ég og gullbókin áttum notalega stund saman. Verst var að nágranni minn var úti í garði allan tímann og ég upp í sófa á brókinni og hlýrabol og fann þar með galla við að búa í kjallara! Ég náði svo líka að byrja á ritgerðinni minni og þetta er ekki jafn skelfilega óyfirstíganlegt og mér fannst í upphafi! Nú hef ég 15 daga til að klára 24 bls í viðbót en ég veit að ég og gullbókin getum þetta.
Eftir 15 daga hefst nefnilega alvöru afmælisundirbúningur fyrir afmæli litla skriðdrekans :) Það verður að sjálfsögðu fjör og ég er roooosalega spennt fyrir að klára verkefnið og skila fyrir það svo ég geti notið afmælisundirbúningsins (haha) og páskafrísins áður en alvara lífsins tekur við eftir páska!
Það verður ekkert smá skrýtið að fara aftur út á vinnumarkaðinn og fara að umgangast fullorðið fólk meira en núna. Jafnvel þó ég sé að fara á leikskóla þá verður það fín tilbreyting ... að hitta fleiri en eina fullorðna manneskju daglega. Ég er amk orðin sannfærð um að ég geti aldrei verið alfarið heimavinnandi þó mig langi ekki rassg** í bala til þess að fara í fulla vinnu neitt á næstunni! Hinn gullni meðalvegur er væntalega bestur...

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)