Sveimér þá ef það er ekki satt! Ég fann a.m.k. fiskiflugu í svefnherbergisglugganum mínum um daginn og þurfti að koma henni þaðan út til þess að ég fengi frið til þess að fá mér fegrunarbund í miðri flensu.
Annað dæmi var um daginn þegar ég var að ná í Óla í vinnuna sá ég að það kúrðu nokkrir fíflar undir húsveggnum. Mér hlýnaði örlítið um hjartað og í eitt andartak datt mér í hug að rífa sofandi dæturnar út úr bílnum og sýna þeim þá en það bráði fljótt af mér þegar ég myndi að það var eiginlega nístingskuldi þarna úti.
Þriðja dæmi er kannski það að ég er farin að sjá fyrir endann á þessari önn og þar með náminu mínu öllu. Vettvangsnámið var alveg frábært og fór sko langt fram úr mínum björtustu vonum. Ég er komin með áhuga á alveg glænýju sviði og hlakka til að takast á við það eftir einhver ár. Eins og er finnst mér vinnan mín samt æðisleg og það verður ósköp gott að komast þangað aftur í maí.
Það er ótrúlega grátt og lítið vorlegt hérna fyrir utan gluggann minn og það er svo sannarlega ekki mikið vor eða sumarlegt við sárlasna grislinginn minn sem er með ca. 40 stiga hita og því heima í svona 100 skiptið í vetur ÁN GRÍNS. Við erum samt orðnar svo vön þessu að við erum nú ekkert að æsa okkur. Enda tilgangslaust, búin að prófa það líka en það breytir engu, hún er bara sífellt lasin þessa elska.
föstudagur, 3. apríl 2009
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)