þriðjudagur, 25. mars 2008

Víííí

Jæja, loksins hafðist það og ritgerðin kláraðist! 10 dögum á eftir áætlun og í staðinn fyrir að eiga 11 daga í fríi á ég einn. Eftir tvo daga fer ég í vettvangsnám og geri fastlega ráð fyrir að þá slakni á naflastrengnum á milli okkar Arneyjar Vöku. Hún ætlar samt að gera þetta pínu dramatískt og vera sárlasin en skinnið er núna lasnara en nokkru sinni fyrr.

Vá hvað þetta var leiðinleg ritgerð. Stundum er actually gaman að skrifa ritgerð og þetta var svo sannarlega ekki ein af þeim. Ég vona að verkefnavinnan sem fer í hönd samfara vettvangsnáminu verði skemmtilegri og ánægjulegri en þarf ég svo sannarlega á því að halda ef ég ætla að meika þetta.

Nú er ég svo ánægð með mig að ég neita að fara að sofa, búin að að eyða of miklum tíma með lasarusinn litla í fanginu eða upp í rúmi í dag til að vera tilbúin í draumalandið. Langar bara til að slaka pínu á og eyði þar með frekar tímanum í að gera ekki neitt heldur en að fara að sofa.
Ungfrú 1 árs er á öðru máli og vill fá mig upp í rúm núna strax og helst áður en hún vaknaði!

Svo þetta er nóg í bili....

Engin ummæli: