Fyrir jólin var mér mikið í mun að þykjast vera ofur húsmæða og gekk það bara nokkuð vel. Við vorum nokkuð sammála um ómissandi smákökutegundir og var því talsvert mikið bakað. Ég mundi t.d. í miðjum bakstri á spesíum, sem eru mínar uppáhaldskökur af hverju ég átti að baka hálfa uppskrift. Það kom þó ekki að sök og ég held við höfum bakað 10 ofnplötur af spesíum. Tókum svo bara nokkrar í poka með rauðum borða með í gjafaleiðangrana. Piparkökur er svo annar handleggur sem er gaman að baka með Sögunni minni en enginn er sérlega hrifinn af.
Reyndar held ég að það sé bara enginn sérlega hrifinn af smákökum á þessu heimili, í það minnsta dettur mér engin önnur skýring í hug á því að í morgun tók ég eftir fullri hillu í einum skápnum af óétnum jólakökum sem klárlega eru á leið í ruslið. Ég alveg sver að þær voru mjög bragðgóðar þegar þær voru bakaðar í nóvember og desember þó ég lofi nú engu um bragðgæði þeirra núna! Hver veit, kannski ég ætti að geyma þær og bjóða upp á þær í næsta afmæli ... sem er eftir minna en mánuð!
laugardagur, 23. febrúar 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Gefðu mér þær bara, ég finn ekki skemmt bragð hvort eð er;)
Skrifa ummæli