miðvikudagur, 20. febrúar 2008

Meðvirkni

Ég á mjög erfitt með að komast hjá því að vera slöpp og drusluleg þessa dagana. Ástæðan? Meðvirkni fyrst og fremst. Ég er með vælandi stelpu með lekandi hor og mikinn hósta ásamt hita á handleggnum, bringunni, hálsakotinu eða bara you name it stærsta hluta dagsins. Á nóttunni hóstar hún á 3ja mínútna fresti og þá þarf að strjúka bakið til að hún nái sér niður aftur litla skinnið. Hún þarf að sofa upp við mig en má ekki vera of heitt ... það er sko vandlifað og maður er ennþá ekki orðinn 11 mánaða. En svo vaknar hún, sest upp með hárið allt út í loftið, hor og tár út um allt og hendir sér á mig til að kyssa mig og þá skiptir engu máli þó ég sé drusluleg með eindæmum. Ég veit að henni finnst ég alltaf langflottust :D

Engin ummæli: