fimmtudagur, 14. febrúar 2008

Letidagur


Stóra litla konan á bænum er búin að eiga gríðarlega erfiða daga og væluröddin hefur verið mikið notuð. Okkur eða a.m.k. mig grunar að þessi margumtalaða afbrýðissemi sé loksins farin að gera vart við sig á heimilinu enda ótrúlegt annað en að að því kæmi. Hún fékk því frí á leikskólanum í dag og svaf til rúmlega 9 og ræsti okkur hinar. So far hefur væluröddin haldið sig fjarri og þar til ég fer aftur að vinna eftir rúman mánuð (*grát* en það er önnur saga). Ég held að ég og litla litla konan séum bara svona ómótstæðilega skemmtilegar því að stóra litla konan er í sínu besta formi.

Það er sko ekki amalegt að fá að eyða deginum með þessari stelpu sem er sko jafn skemmtileg og góð í dag og hún er sæt.

2 ummæli:

Steinunn sagði...

Það er gott að skottið er ánægt:) Gott að fá frí öðru hvoru!

Erla sagði...

vinsamlegast sækið samt væluröddina sem gleymdist, hún er að gera sig tilbúna til að setjast að hjá litlum dreng!