Þá er kominn sprengidagur sem er klárlega minnst uppáhaldsdagurinn minn í þessu þríeyki. Búin að borða bollur, saltkjöt og standa í búninga stússi við þrjósksta 3ja ára barnið sem ég á. Málið virðist engu að síður hafa fengið farsæla lausn og í fyrramálið labbar héðan út lítil ævintýraprinsessa. Ein mamma og eitt tígrisdýr ætla svo að fylgja með á grímuball.
Ég og tígrisdýrið erum að þykjast vera svakalega ferskar þennan morguninn og það togast á í mér hvort ég ætti nú að fara og taka til í eldhúsinu, athuga með að læra á meðan tígurinn hefur ennþá ofan fyrir sjálfri sér eða halda áfram að vera löt og rausa hér. Þar sem að undir öllum venjulegum kringumstæðum virka ég betur á kvöldin en morgnana þá ætla ég að leyfa mér að vera löt, a.m.k. þar til að klukkan slær níu. Undanfarna daga og vikur og, já sennilega bara mánuði hefur kvöldorkan mín samt verið fokin út í veður og vind. Ég vildi ég ætti töfraráð til að bæta eins og kannski tveimur klukkustundum við kvöldið, svona einhvers staðar á milli 21 og 23. Það væri akkúrat það sem ég þyrfti á að halda því að kl.21 þessa dagana langar mig að gera allt annað en að læra. Á daginn kem ég sjaldnast miklu í verk nema í litlum skömmtum á milli þess sem ég man að ég gleymdi að loka baðinu og verð að redda því, að fjarstýringar og símar sem ég hélt að væru í öruggri höfn eru að drukkn í munnvatni og svona ýmislegt fleira. Þessar athafnir eru líka ólíkt skemmtilegri og meira spennandi heldur en að læra svo að ég er mikið frekar til í það heldur en að læra. Sérstaklega núna þegar ég ligg í einhverri leiðindaþýðingu og veit hreinlega ekki hvert enskukunnáttan og málsskilningurinn minn hefur farið!
Ég veit að ég er nýkomin úr jólafríi en langar manni ekki alltaf í frí? Það held ég nú. Litla tígrisdýrið lætur núna eins og kettlingur og er að reyna að fá mömmu sína til að skilja að sjö tíma nætursvefn nægi henni engan veginn og fá hana til að lúra með sér. Ég er að hugsa um að láta það eftir litla tígrisdýrinu því hver vill nú eiga von á því að lenda illa í reiðu tígrisdýri. Alternative Approaches to Assesing Young Children ætlar að koma með okkur mæðgunum í bólið og hver veit, kannski verður spennandi hver sofnar fyrst :)
þriðjudagur, 5. febrúar 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Oh svo sammála með sprengidag, fíla ekki fitu með nokkrum kjöttæjum hangandi á og með'ðí.
Vonandi var Ævintýraprinsessan ánægð með daginn í dag. Litli kóngulóarmaðurinn minn skipti endalaust um skoðun á því hvað hann vildi vera í morgun, allt eftir því hvaða búningum vinirnir voru í. Helst vildi hann vera Solla Stirða. :s
Hafið það gott, það líður senn að hitting.
Skrifa ummæli