þriðjudagur, 29. janúar 2008

Alltaf að blogga

Þessi færsla verður aðeins á léttari nótunum en sú síðasta og ég vona innilega að ég sjái mig ekki knúna til að blogga aftur um pólitík.

Dóttir mín hefur síðan um jólin glatt okkur með sögum af ímyndaðri vinkonu sinni. Vinkonan sú byrjaði vel og var alltaf mikið fyrirmyndarbarn og gerði ekki nokkurn skapaðan hlut af sér. Hún var líka svo mikil fyrirmyndarstúlka að hún stóð sig sérlega vel í öllu því sem mín stúlka stendur kannski örlítið höllum fæti. Núna aftur á móti er öldin önnur, en henni Gunnu (en það heitir ímyndaða vinkonan) kennt um allt. Gunna hellti t.d. úr heillri maukkrukku á kökudisk um helgina og Sögugreyið neyddist til að borða það upp af disknum. Gunna sullar niður, skrifar á borðið og gerir ýmsan óskunda.

Ég gat nú ekki annað en glaðst þegar að Gunna heimsótti okkur enda man ég vel eftir mínum ímynduðu vinum. Þegar að mamma heyrði af góðvinkonu Sögunnar hló hún bara og sagðist sko muna vel eftir því að binda hundinn minn fyrir utan leikskólann. Glöggir lesendur vita kannski að einu dýrin sem ég hef átt eru fuglar og fiskar (sem dóu samdægurs) og því um ímyndaðan hund að ræða. Vinkonur mínar voru líka duglegar við þetta og eftir að ég flutti suður hlupu þessir ímynduðu vinir á milli landshluta á örskots stundu á meðan við vinkonurnar spjölluðum saman, önnur í Reykjavík og hin á Bolungavík. Ég get vel viðurkennt að ennþá hef ég gaman af henni Gunnu og uppátækjunum í henni og finnst dóttir mín græða heilmikið á þessum leik. Ég er fús til þess að taka hana Gunnu með mér hvert sem og er og tek svona nokkurn veginn fullan þátt í leiknum.

Það verður ágætt að rifja þessa færslu upp þegar ég verð orðin þreytt á leiknum. Ef að Sagan líkist mömmu sinni að þessu leyti á þetta ábyggilega eftir að verða langlífur leikur. Annars er hún farin að tala um að búa til sögur svo hver veit? Ég er a.m.k. nokkuð viss um það hana skortir ekki ímyndunaraflið enda hugsa ég að myndi reyna að skila henni ef ég óttaðist það!

3 ummæli:

Sandra sagði...

Ætli hún verði ekki orðin rithöfundur hvað úr hverju einsog hún á kyn til :)

Ég hlakka allavega til að fylgast með, ég er viss um að hún verður hörkupenni einsog mamma sín...!

Nafnlaus sagði...

Gunna er bara frábær! Ekki svo mörg ár síðan ég þurfti að sinna honum Emil (Kattholts), til jafns við dóttur mína. Bara flott þegar krakkarnir hafa svona hugmyndaflug.

Sendi knús til Sögu og Gunnu!

Steinunn sagði...

Hehehe krúttlegt:)