Ég er nú yfirleitt frekar umburðarlynd og geðgóður bílstjóri, já svona oftast þó að það hvíni nú stundum í mér. Ég er að sjálfsögðu fínasti bílstjóri sjálf og er að spá í hætta að keyra eftir svona 40 ár ca. A.m.k. ekki mikið seinna ... Gamalt fólk og umferðin er skeeeelfileg! Hvað er málið með eldgamalt fólk að keyra á móti umferð?
Kannski bý ég í svona hræðilegu gamlingja ökumannahverfi en í fyrradag beygði gamall karl á móti umferð niður hjá nýju Hreyfingu við Glæsibæ í mestu rólegheitum þó að bílarnir í kring lægju á flautunni. Ég var örugg hinum megin við gatnamótin en það var ekki svo gott í gærdag þegar ég ætlaði að fara að sækja Söguna mína á leikskólann. Þá kom gömul kelling og beygði, á móti umferð inn Álfheimana!!! Ég rétt náði að sveigja frá - var sem betur fer á leiðinni að skipta yfir á fráreinina og lagðist á flautuna en hún keyrði bara eins og drottning áfram á móti umferð!! Gaaaad hvað ég var pirruð! Ég hefði samt sennilega ekki haldið kúlinu svona vel ef stelpurnar höfðu verið með mér í bílnum!
Það skal þó viðurkennast að ég hef ekið öfuga átt í gegnum einstefnugötu en þar var engin umferð og ég fattaði það löngu eftir á. Ég var líka 17 ára og nýkomin með bílpróf, kannsk 18 ára.
Bæta almennissamgöngurnar og taka bílprófið af fólki upp úr sextugu. Ég er eiginlega pínu smeyk þar sem amma nágranni minn sem verður 85 ára á árinu býr á móti okkur, á bíl og ég hreinlega bíð ekki í það ef ég sæi hana á keyrslu hérna í kring. Kannski ég sendi Óla út og láti hann skera á dekkin hjá henni?
laugardagur, 9. febrúar 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Já ég get nú ekki sagt að ég hafi mikið tolerance fyrir mótorhjólafólki - síðast þegar það fór í mínar fínustu hringdi ég á lögguna!
Skrifa ummæli