laugardagur, 5. apríl 2008

sjúbbsjúbbsjarei

Það er sko nóg að gera á öllum vígstöðvum.

Vettvangsnámið er bara þrælskemmtilegt og gengur auðvitað bara mjög vel! Það er ótrúlega gott að komast út og mér finnst svo gaman í vinnunni! Já og ég segi bara vinnunni því þetta finnst mér ósköp svipað vinnunni! Hlakka bara nokkuð mikið til að fara á Klambra í maí - sérstaklega þar sem að þá fer ég heim úr vinnunni og búið mál. Get slegið öllu upp í kæruleysi og notið sumarsins sem ætlar að vera sérlega gott. Ekki skemmir fyrir að Sagan er ótrúlega spennt að fá mig aftur þangað niðureftir og verður gaman að sjá hvernig hún tekur því. Hún var svo ótrúlega mikið pons þegar ég fór í fæðingarorlof.

Ég á svo eitt lítið fiðrildi sem er soldið mömmusjúkt og hér í kvöld tók hún pabba sinn greinilega fram yfir mig! Þau eru að hafa það bara mjög svo fínt hérna saman á daginn og við stelpurnar reynum svo að gera eitthvað skemmtilegt seinnipart dagsins. Ég er svo þrusu skipulögð þegar ég er svona ein með þær á kvöldin að eitt kvöldið vorum við allar sofnaðar kl.19:30. Það er fullsnemmt en ég þarf sko að fara í rúmið örlítið seinna en þær til að fúnkera, alveg komin úr æfingu við þetta alllt saman :)

Ég r að vona að það verði svona blíða um helgina og stefna á að gera eitthvað skemmtilegt. Ég krossa líka putta og vona að veðrið í gær hafi verið smá djók og nú sé komið vor, við erum mjög svo tilbúin fyrir það, tímabært að hefja freknusöfnun og horfa á aðra í fjölskyldunni verða súkkulaðibrúna en þessir örfáu geislar eru strax farnir að skila sér í litlu andliti. Ég væri svo til í að smá brot af þessu sko ...

Engin ummæli: