Já ég er svo sannarlega komin í sumarfrí! Komin aftur á Klambra sem er frábært og við mæðgurnar eyðum deginum okkar þar allar þrjár :D Það eru engin verkefni og enginn skóli sem hangir yfir mér og ég get bara verið kærulaus. Kæruleysið hingað til felst samt í því að vera dugleg að vera úti, fara snemma að sofa og glápa á sjónvarpið. Já og lesa, ótrúlega ljúft að gefa sér tíma í að lesa án þess að vera með móral.
Einhvern veginn er það nú svo þegar ég er í skólanum að ég hangi alltof mikið í tölvunni í að gera ekki neitt og þykjast vera að læra. Núna er ég og tölvan mín búnar að gefast upp á hvor annarri og ég og Óli deilum tölvunni hans sem veldur því að við eyðum bæði miklu minni tíma í tölvunni sem er bara jákvætt :)
Annars er ýmislegt að gerast - íbúðamál á fullum snúning og ýmislegt annað sem er aðeins meira mál. Nú er bara rúmur mánuður í að ég fari í sumarfrí og hitti snúlluna hana Ídu Maríu og auðvitað mömmuna hennar líka! Ég hefði bara ekki getað skilið að ég gæti saknað manneskju sem ég hef aldrei hitt svona mikið! Verður óendanlega gaman að knúsa hana og kynnast henni.
Síðan er blíðan víst að gera sig í Noregi og ég krossa putta og vona að við fáum blíðu þar í sumar en ekki grenjandi rigningu upp á hvern dag eins og í fyrra. Það væri nú aldeilis frábært að fá smá sólstrandarfíling þar :D Óli á líka eftir að kynnast þeirri hlið á Bergen og Steinunn er sérlega spennt að kynna hann fyrir blíðunni til að halda aðeins í vonina um að veiða okkur einhvern daginn til sín. Hver veit? Við erum nú svosem ekki sérstakir sólarunnendur en það er sama :)
laugardagur, 31. maí 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli