laugardagur, 19. apríl 2008

Tja...

Ennþá er ég að hafa bara mjög gaman af vettvangsnáminu en áhuginn á að læra og vinna verkefni er aðeins að dvína. Ég fór samt svo vel af stað að það skiptir ekki öllu máli, er ennþá í góðum málum.
Nú er ótrúlega lítið skipulögð helgi og ég er löt. Nenni hreinlega engu, Hagkaup bíður spennt eftir að ég heiðri það með nærveru minni og eyði nokkrum krónum þar svo hafði ég hugsað mér að rölta með átta dekk á bensínstöðina og setja loft á þau svo að við fjölskyldan séum tilbúin í sumarið.

Ég veit ekki hvað er að mér, en þetta er held hreinlega í fyrsta sinn sem mig langar til þess að fara að þrífa bílinn. Kannski ég skelli Sögu í stígvél og peysu og skröltum þá með 12 dekk í dag á bensínstöðina :) Ég kenni foreldrum mínum um þetta madness en þau lánuðu mér bílinn sinn í tvær vikur á meðan pabbi var í Noregi og það var bara svo fínt í honum :) Svo var hann sjálfskiptur og hefur gert það að verkum að ég drap á mínum bíl í tíma og ótíma :)

Síðasta vetraractivity-ið okkar verður sennilega að fara á skauta á morgun en við ætlum að byrja í leikhúsinu og halda svo á skauta.

Engin ummæli: