miðvikudagur, 9. apríl 2008

Gaman gaman

Oftast nær þegar ég ræði um námið mitt er það á neikvæðu nótunum. Eins og gefur að skilja í minni stöðu er skólinn ekki í hæsta forgangi og ótrúlegt hvað ég hef náð að koma mér í gegnum þetta so far. Reglulega fæ ég panik kast, veit ekki hvað ég á að gera, hvernig á að ljúka þessu, hvort ég sé yfirhöfuð í réttu námi og hvort ég eigi nokkurn tímann eftir að klára þetta.

Eeeen það er sko aldeilis ekki tilfellið núna!
Mér finnst vettvangsnámið alveg ótrúlega skemmtilegt! Allt í einu er ég komin aftur á það að ég sé á réttri hillu þó að það sé allskonar dillur í mér sem ég læt mig dreyma um. Það er ekki nóg með það að ég skemmti mér á vettvangi og sé ánægð með þetta allt saman heldur finnst mér verkefnavinnan, s.s. leiðabókin og einstaklingsáætlunin bara alveg stóóóórskemmtilegt.
Verst finnst mér að það séu bara 24 tímar í sólarhringnum. Ég þyrfti að bæta við eins og þremur tímum á milli 14 og 15 svo að ég hafi nægan tíma til að leggja þá vinnu sem mig langar að geta lagt í verkefnin í þau en samt getað sinnt stelpunum þann tíma sem ég er með þær og svo væri líka ágætt að hafa góðan tíma í sturtu og jafnvel til að eyða smá tíma með karlinum mínum svona af og til.
En af því að ég er Pollýanna í kvöld þá er þetta bara allt í góðu og ekkert slæmt mál. Ég ætla að vona og trúa að hugarfarið skili sér svolítið í betra verkefni en ella og að ég sé að gera þetta þrusuvel þó að ég myndi vilja hafa betri tíma.

En að öðru ... mér tókst að týna dóttur minni í gær. Nei, ekki Sögu heldur litla dýrinu. Jújú mikið rétt, barnið bara hvarf á meðan ég sinnti systur hennar. Ég fylltist örvæntingu, þar sem ég var jú föst heima með þær og allar útgönguleiðir lokaðar. Ég vissi auðvitað að hún var ekkert týnd en á þriðja hring um íbúðina var ég farin að skrækja aðeins og Sögu hætt að lítast á blikuna. Svo fann ég hana auðvitað þar sem hún stóð við hurðina út í garð og hafði dregið fyrir svo hún var þar falin. Fannst þetta svona líka ægilega fyndið þegar ég fann hana og mér var ekki skemmt.
Hvurslags móðir er það sem getur týnt barninu sínu innan fjögurra veggja heimilisins? Og hvurslags rugludallur heldur í alvöru að árs gamla barnið geti gufað upp á örskammri stundu? Snögg er hún ... en langt frá því að vera yfirnáttúruleg :D

2 ummæli:

Steinunn sagði...

Mikið ert þú heppin að skemmta þér svona yfir þessu! Get ekki beint sagt að ég elski verkefnin sem mér eru sett fyrir í þessum skóla..;)
Sniðugt litla dýrið að gabba þig svona!

Nafnlaus sagði...

Gott að verkefnið er svona skemmtilegt :) en ég verð að segja að ég hló frekar mikið af því að barnið hafi "horfið" á heimilinu hehe þó það sé auðvitað ekkert fyndið, en samt pínu svona eftirá er það ekki???? Ég hugsa að ég myndi fríka út ef snúllan mín "hyrfi" bara allt í einu svona

kv Steinunn Þórdís og snúlla litla